Ágúst Stefánsson's user profile page. Match highlights, posts and more on site!“” Report User |
Hér má sjá keppni í sérútbúna flokknum í Íslensku torfærunni árið 1995. Eins og alltaf var mikið líf og fjör í torfærunni og nokkrir ógleymanlegir taktar sáust. Alls voru 6 mót yfir sumarið en 4 þeirra voru hluti af Íslandsmótinu en 2 þeirra voru hluta af Bikarmótinu. Að vanda er það Birgir Þór Bragason sem lýsir keppnunum. Á meðal keppenda voru: Gísli Gunnar Jónsson (kókómjólkurbíllinn), Gunnar Egilsson (Svalabíllinn), Benedikt Eiríksson (Gevalia bíllinn), Einar Gunnlaugsson (Norðdekkdrekinn), Helgi Schiöth (Frissi Fríski bíllinn), Jón A. Gestsson (Brekkubíllinn), Haraldur Pétursson (Kjörísbíllinn), Þórir Schiöth (Jaxlinn) og Ragnar Skúlason (Þór) 00:00 Akureyri - 1. mót á Íslandsmóti 06:58 Jósefsdalur - 2. mót á Íslandsmóti 13:46 Egilsstaðir - 1. mót á Bikarmóti 22:26 Akranes - 3. mót á Íslandsmóti 27:22 Grindavík - 2. mót á Bikarmóti 32:46 Hella - 4. mót á Íslandsmóti Myndefni fengið úr þættinum Íslenskt Mótorsport 1995. English: Formula Off Road is a sport that was invented in Iceland and has gained popularity in the Nordic countries. Here you can see action from the Unlimited class Icelandic competition held in 1995. The sport was so popular at one time that EuroSport aired TV shows about the Icelandic competition. 00:00 Akureyri - 1. competition in the Icelandic Championships 06:58 Jósefsdalur - 2. competition in the Icelandic Championships 13:46 Egilsstaðir - 1. competition in the Icelandic Cup 22:26 Akranes - 3. competition in the Icelandic Championships 27:22 Grindavík - 2. competition in the Icelandic Cup 32:46 Hella - 4. competition in the Icelandic Championships
KA og Valur mættust í bikarúrslitum í handbolta árið 1995. KA var að leika til úrslita annað árið í röð en þó reiknuðu flestir með sigri Valsmanna í leiknum. Úr varð einhver ótrúlegasti úrslitaleikur allra tíma þar sem KA leiddi mest allan leikinn en tókst ekki að klára í venjulegum leiktíma og svo fór að það þurfti að framlengja leikinn. KA komst í góða stöðu, 24-21, þegar rúm mínúta lifði leiks en Valsmönnum tókst á ótrúlegan hátt að jafna metin og tryggja sér aðra framlengingu. Þar loksins náðu KA menn að halda út og sigruðu að lokum 27-26 í mögnuðum leik. KA vann þarna sinn fyrsta stóra titil í handknattleik og Erlingur Kristjánsson fyrirliði liðsins lyfti bikarnum en hann var einnig fyrirliði KA sem varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1989. Mörk KA í leiknum: Patrekur Jóhannesson 11 mörk, Valdimar Grímsson 8, Alfreð Gíslason 6 og Leó Örn Þorleifsson 2. Í markinu varði Sigmar Þröstur Óskarsson 23 skot, þar af 4 vítaköst. Mörk Vals í leiknum: Dagur Sigurðsson 6 mörk, Frosti Guðlaugsson 5, Júlíus Þór Gunnarsson 4, Ingi Rafn Jónsson 3, Jón Ríkharð Kristjánsson 3, Valgarð Thoroddsen 3, Sigfús SIgurðsson 1 og Geir Sveinsson 1. Í markinu varði Guðmundur Hrafnkelsson 19 skot, þar af 4 vítaköst.
KA og Valur mættust í úrslitaleik bikarsins í handbolta árið 1995 en leikurinn er af mörgum talinn besti úrslitaleikur allra tíma. KA hafði tapað í úrslitum árið áður en stórlið Vals var af flestum talið líklegra til að fara með sigur af hólmi í leiknum. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og var uppselt í bæði flug og rútuferðir frá Akureyri og Laugardalshöllin var troðfull þegar flautað var til leiks. Hér er hitað upp fyrir leikinn þar sem rætt er við Geir Sveinsson fyrirliða Vals og Þorbjörn Jensson þjálfara Vals. Þá er rætt við stuðningsmenn liðanna í Reykjavík, en það eru Anna Björk Birgisdóttir (KA) og Ingvi Hrafn Jónsson (Valur). Fyrir norðan ræðir Bjarni Hafþór Helgason við nokkra aðila en það eru þau Sigurbjörg Níelsdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Árni Stefánsson.
KA tók á móti Gróttu í 15. umferð 1. deildar karla, KA hafði unnið fyrri leik liðanna á Seltjarnarnesi 0-1 og bráðvantaði stigin úr þessum leik einnig ef liðið átti að koma sér aftur í baráttuna um sæti í Pepsi deildinni. Josip Serdarusic skoraði eina mark leiksins á 28. mínútu eftir góðan einleik og bylmingsskoti. Þetta var lokaleikur Bjarna Jóhannessonar með KA liðið en hann hætti störfum eftir leikinn.
KA tók á móti Val í undanúrslitum Borgunarbikars karla þann 29. júlí 2015. 1. deildarlið KA hafði áður slegið út Breiðablik og Fjölni sem eru toppbaráttulið í Pepsi deildinni en þrátt fyrir það voru Valsmenn þó taldir líklegri til að fara áfram. Þetta var fjórða viðureign liðanna í bikarkeppni KSÍ og höfðu allir þrír leikirnir farið í framlengingu, KA sigraði í framlengingu árið 1984, Valsmenn urðu bikarmeistarar 1992 eftir sigur á KA í úrslitum eftir framlengingu og þá sigruðu Valsarar viðureign liðanna í bikarnum 2009 eftir framlengingu. Það mátti því búast við að leikurinn yrði lengri en 90 mínútur. Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins strax á 6. mínútu úr vítaspyrnu eftir að hann hafði verið felldur í teig Valsmanna. Gestirnir jöfnuðu hinsvegar metin á 22. mínútu þegar Orri Sigurður Ómarsson skoraði eftir klafs í teig KA manna. Ekki voru fleiri mörk skoruð í venjulegum leiktíma en KA menn áttu að fá vítaspyrnu á 48. mínútu þegar boltinn fór greinilega í hönd Ian Williamson í vörn Vals en ekkert var dæmt. Fátt markvert gerðist í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Eftir mikinn hasar þá skipti klúður Josip Serdarusic sköpum og Valsmenn fögnuðu sigri og fara áfram í úrslitaleikinn. Myndefni fengið úr útsendingu Stöð 2 Sport
KA tók á móti Pepsi deildarliði Fjölnis í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fór fram á Akureyrarvelli þann 6. júlí 2015. Fjölnisliðið hafði staðið sig vel í Pepsi deildinni á meðan KA var í 4. sæti 1. deildar og reiknuðu því eflaust margir með sigri gestanna. KA-menn mættu hinsvegar ákaflega vel stemmdir til leiks og voru strax eftir 8. mínútna leik komnir í 2-0. Davíð Rúnar Bjarnason skoraði fyrsta markið eftir klafs í teignum á 6. mínútu og síðar strax eftir skoraði Ævar Ingi Jóhannesson glæsilegt mark eftir sendingu yfir vörn Fjölnismanna. KA menn héldu áfram að vera sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en fleiri urðu mörkin ekki og staðan því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks. Mark Charles Mcgee minnkaði muninn á 52. mínútu og Fjölnisliðið allt í einu komið aftur inn í leikinn. Hinsvegar náðu heimamenn að loka vel og voru óheppnir að skora ekki eitt í viðbót en lokatölur 2-1 og KA áfram í undanúrslitin. Að lokum var svo rætt við Ævar Inga, Bjarna Jóhannsson þjálfara KA og Ágúst Þór Gylfason þjálfara Fjölnis. Myndband fengið úr umfjöllun Stöð 2 Sport um leikinn.
KA mætti Breiðablik í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fór fram í Kópavogi þann 18. júní 2015. Breiðablik var ósigrað í Pepsi deildinni í 2. sæti á meðan KA var í 5. sæti 1. deildar og reiknuðu því flestir með öruggum sigri þeirra grænklæddu. KA-menn mættu hinsvegar baráttuglaðir til leiks og gáfu ekkert eftir. Eftir frekar daufan fyrri hálfleik þar sem KA menn áttu skot í stöng þá þurfti að framlengja og þar var mikill hasar. Ævar Ingi Jóhannesson skoraði fyrir KA á 98. mínútu með skalla, á 112. mínútu átti Elfar Árni Aðalsteinsson dauðafæri en vippaði boltanum framhjá. Það var svo Srdjan Rajkovic markvörður KA sem kláraði leikinn af ótrúlegri snilld þegar hann varði boltann hvað eftir annað og sá til þess að KA sigraði 0-1 og sló þar með út stórlið Breiðabliks og er því eina liðið utan Pepsi deildarinnar í 8-liða úrslitunum. Að lokum var svo rætt við Ævar Inga og Bjarna Jóhannsson þjálfara KA. Myndband fengið úr beinni útsendingu Stöð 2 Sport frá leiknum.
KA tók á móti Selfyssingum í 5. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu þann 6. júní 2015 á KA-Vellinum. KA var sterkari aðilinn í leiknum og komst yfir strax á 4. mínútu leiksins með marki Elfars Árna. Selfyssingar jöfnuðu hinsvegar leikinn á 58. mínútu með marki Einars Ottó en Archange Nkumu kom KA aftur yfir á 66. mínútu. KA skoraði síðan mark sem virtist vera löglegt en var dæmt af en markvörður Selfoss hafði misst boltann. Selfyssingar refsuðu og jöfnuðu undir lokin með marki á 85. mínútu en Ingþór Björgvinsson skoraði markið. Aftur skoraði síðan KA mark sem dæmt var af í uppbótartíma og voru heimamenn því ekki parsáttir þegar flautað var til loka leiks og einungis 1 stig í hús.