KA mætti Breiðablik í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fór fram í Kópavogi þann 18. júní 2015. Breiðablik var ósigrað í Pepsi deildinni í 2. sæti á meðan KA var í 5. sæti 1. deildar og reiknuðu því flestir með öruggum sigri þeirra grænklæddu. KA-menn mættu hinsvegar baráttuglaðir til leiks og gáfu ekkert eftir. Eftir frekar daufan fyrri hálfleik þar sem KA menn áttu skot í stöng þá þurfti að framlengja og þar var mikill hasar. Ævar Ingi Jóhannesson skoraði fyrir KA á 98. mínútu með skalla, á 112. mínútu átti Elfar Árni Aðalsteinsson dauðafæri en vippaði boltanum framhjá. Það var svo Srdjan Rajkovic markvörður KA sem kláraði leikinn af ótrúlegri snilld þegar hann varði boltann hvað eftir annað og sá til þess að KA sigraði 0-1 og sló þar með út stórlið Breiðabliks og er því eina liðið utan Pepsi deildarinnar í 8-liða úrslitunum. Að lokum var svo rætt við Ævar Inga og Bjarna Jóhannsson þjálfara KA. Myndband fengið úr beinni útsendingu Stöð 2 Sport frá leiknum.