KA tók á móti Val í undanúrslitum Borgunarbikars karla þann 29. júlí 2015. 1. deildarlið KA hafði áður slegið út Breiðablik og Fjölni sem eru toppbaráttulið í Pepsi deildinni en þrátt fyrir það voru Valsmenn þó taldir líklegri til að fara áfram. Þetta var fjórða viðureign liðanna í bikarkeppni KSÍ og höfðu allir þrír leikirnir farið í framlengingu, KA sigraði í framlengingu árið 1984, Valsmenn urðu bikarmeistarar 1992 eftir sigur á KA í úrslitum eftir framlengingu og þá sigruðu Valsarar viðureign liðanna í bikarnum 2009 eftir framlengingu. Það mátti því búast við að leikurinn yrði lengri en 90 mínútur. Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins strax á 6. mínútu úr vítaspyrnu eftir að hann hafði verið felldur í teig Valsmanna. Gestirnir jöfnuðu hinsvegar metin á 22. mínútu þegar Orri Sigurður Ómarsson skoraði eftir klafs í teig KA manna. Ekki voru fleiri mörk skoruð í venjulegum leiktíma en KA menn áttu að fá vítaspyrnu á 48. mínútu þegar boltinn fór greinilega í hönd Ian Williamson í vörn Vals en ekkert var dæmt. Fátt markvert gerðist í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Eftir mikinn hasar þá skipti klúður Josip Serdarusic sköpum og Valsmenn fögnuðu sigri og fara áfram í úrslitaleikinn. Myndefni fengið úr útsendingu Stöð 2 Sport