Ágúst Stefánsson's user profile page. Match highlights, posts and more on site!“” Report User |
KA tók á móti Aftureldingu í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997 þann 12. apríl 1997. KA hafði náð heimaleikjaréttinum og gat með sigri í KA-Heimilinu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skiptið í sögu félagsins. Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Þorvaldur Þorvaldsson, Jakob Jónsson, Sverre Andreas Jakobsson og Alfreð Gíslason úti. Mörk KA: Róbert Julian Duranona 11 (1 úr víti), Jakob Jónsson 3, Jóhann Gunnar Jóhannsson 3, Sergei Ziza 2, Leó Örn Þorleifsson 2, Björgvin Þór Björgvinsson 2 og Alfreð Gíslason 1 Þá má sjá fögnuð KA manna að leik loknum sem var ógurlegur enda tókst loksins að ná Íslandsmeistaratitlinum norður og Alfreð Gíslason var kvaddur með þökkum.
KA heimsótti Gróttu í 4. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu þann 30. maí 2015. Veðrið hafði mikil áhrif á leikinn og úr varð mikill baráttuleikur. Ævar Ingi Jóhannesson skoraði eina mark leiksins á 83. mínútu með laglegri vippu yfir Árna Frey í marki Gróttu eftir hraða sókn.
KA varð að leggja Hauka að velli í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997 en leikurinn fór fram þann 27. mars 1997. Haukar sigruðu fyrsta leik liðanna og KA þurfti sigur í KA-Heimilinu til að knýja fram oddaleik. Þess má geta að Alfreð Gíslason handarbrotnaði í leiknum en lét það ekki stöðva sig og kláraði leikinn og reyndar alla leikina sem eftir voru á tímabilinu, þvílík harka! Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Jakob Jónsson, Sverre Andreas Jakobsson og Alfreð Gíslason úti. Mörk KA: Róbert Julian Duranona 10, Sergei Ziza 8 (4 úr vítum), Leó Örn Þorleifsson 4, Jóhann Gunnar Jóhannsson 3, Sævar Árnason 3 og Björgvin Þór Björgvinsson 2
KA og Stjarnan mættust öðru sinni í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997 þann 19. mars 1997. Stjörnumenn höfðu náð sigri í fyrsta leik liðanna í KA-Heimilinu og gátu því slegið út sterkt lið KA með sigri á sínum heimavelli í Garðabænum. Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Þorvaldur Þorvaldsson, Jakob Jónsson, Sverre Andreas Jakobsson og Alfreð Gíslason úti. Mörk KA: Róbert Julian Duranona 11 (5 úr vítum), Heiðmar Felixson 4, Sergei Ziza 4 (1 úr víti), Leó Örn Þorleifsson 3, Sævar Árnason 3, Jóhann Gunnar Jóhannsson 3 og Björgvin Þór Björgvinsson 1
KA og Stjarnan mættust í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997. KA var með heimaleikjarétt í einvíginu en liðið endaði í 3. sæti Nissan-deildarinnar en Stjarnan í 6. sæti. Það var búist við hörkubaráttu í einvíginu og Stjörnumenn áttu eftir að koma mörgum á óvart þá sérstaklega í fyrsta leik liðanna sem fram fór í KA-Heimilinu þann 17. mars 1997. Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson, Hörður Flóki Ólafsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Halldór Jóhann Sigfússon, Jakob Jónsson og Sverre Andreas Jakobsson úti. Mörk KA: Sergei Ziza 4 (1 úr víti), Sævar Árnason 3, Róbert Julian Duranona 2, Leó Örn Þorleifsson 2, Jakob Jónsson 1, Heiðmar Felixson 1, Björgvin Þór Björgvinsson (1 úr víti)
KA lék í fyrsta skiptið í úrslitum Bikarkeppninnar í Knattspyrnu þegar liðið lék gegn Val sumarið 1992. KA hóf leikinn mun betur og komst yfir á 30. mínútu með marki Gunnars Más Mássonar og Ormarr Örlygsson kom liðinu í 2-0 með marki á 32. mínútu. Valsmönnum tókst hinsvegar að jafna metin eftir furðulega mikinn uppbótartíma. Í framlengingunni voru Valsmenn svo sterkari og sigruðu. Fyrrum leikmaður KA, Anthony Karl Gregory, lék vel og skoraði þrennu.
Akureyri og Haukar mættust í hörkuleik þann 8. desember 2011. Þegar aðeins ein og hálf mínúta er eftir af leiknum eru Haukar yfir 18-19 en Akureyri hinsvegar gafst ekki upp og kláraði leikinn með stæl! Bjarni Fritz skoraði magnað mark í horninu áður en Hörður Fannar skoraði af línunni á lokasekúndunni og allt gjörsamlega tryllist í Höllinni!
Hér má sjá svipmyndir frá 25-19 glæsisigri Akureyrar á ÍBV þann 21. mars 2015. RÚV sýndi þessa frétt um leikinn þar sem Hreiðar Levý Guðmundsson, maður leiksins, er meðal annars tekinn í viðtal