KA og Valur mættust í bikarúrslitum í handbolta árið 1995. KA var að leika til úrslita annað árið í röð en þó reiknuðu flestir með sigri Valsmanna í leiknum. Úr varð einhver ótrúlegasti úrslitaleikur allra tíma þar sem KA leiddi mest allan leikinn en tókst ekki að klára í venjulegum leiktíma og svo fór að það þurfti að framlengja leikinn. KA komst í góða stöðu, 24-21, þegar rúm mínúta lifði leiks en Valsmönnum tókst á ótrúlegan hátt að jafna metin og tryggja sér aðra framlengingu. Þar loksins náðu KA menn að halda út og sigruðu að lokum 27-26 í mögnuðum leik. KA vann þarna sinn fyrsta stóra titil í handknattleik og Erlingur Kristjánsson fyrirliði liðsins lyfti bikarnum en hann var einnig fyrirliði KA sem varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1989. Mörk KA í leiknum: Patrekur Jóhannesson 11 mörk, Valdimar Grímsson 8, Alfreð Gíslason 6 og Leó Örn Þorleifsson 2. Í markinu varði Sigmar Þröstur Óskarsson 23 skot, þar af 4 vítaköst. Mörk Vals í leiknum: Dagur Sigurðsson 6 mörk, Frosti Guðlaugsson 5, Júlíus Þór Gunnarsson 4, Ingi Rafn Jónsson 3, Jón Ríkharð Kristjánsson 3, Valgarð Thoroddsen 3, Sigfús SIgurðsson 1 og Geir Sveinsson 1. Í markinu varði Guðmundur Hrafnkelsson 19 skot, þar af 4 vítaköst.