Ágúst Stefánsson's user profile page. Match highlights, posts and more on site!

“”

 Report User

Highlights

Stjarnan - Akureyri 26-23 (30. nóv. 2015), svipmyndir
Stjarnan - Akureyri 26-23 (30. nóv. 2015), svipmyndir

Stjarnan sem er á toppi 1. deildar tók á móti Akureyri í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins þann 30. nóvember 2015 í Mýrinni. Fyrirfram var búist við hörkuleik þrátt fyrir að liðin léku ekki í sömu deild. Eftir jafnan fyrri hálfleik þá skoruðu heimamenn síðustu fjögur mörkin í fyrri hálfleik og leiddu 16-11 þegar flautað var til hlés. Akureyri kom til baka og náði tvívegis að minnka muninn í eitt mark en tókst þrátt fyrir nokkrar tilraunir aldrei að jafna metin og Stjarnan er því komin áfram í bikarkeppninni á meðan Akureyri er fallið úr leik.



Fram - Akureyri 26-26 (26. nóv. 2015), svipmyndir og lokamínútan
Fram - Akureyri 26-26 (26. nóv. 2015), svipmyndir og lokamínútan

Fram tók á móti Akureyri í 15. umferð Olís deildar karla þann 26. nóvember 2015. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda bæði lið búin að leika vel að undanförnu. Svo fór að heimamenn í Fram leiddu leikinn lengst af og voru með leikinn í höndum sér. En frábær karakter Akureyrarliðsins skilaði liðinu aftur inn í leikinn og jöfnunarmark 9 sekúndum fyrir leikslok þýddi það að liðin þurftu að sætta sig við sitt hvort stigið. Hér má sjá stutta frétt RÚV um leikinn og svo brot af upptöku Fimmeinn.is af lokamínútu leiksins.



Stefán Guðnason, furðuvarsla gegn Fram (2010)
Stefán Guðnason, furðuvarsla gegn Fram (2010)

Akureyri sótti Fram heim í Safamýrina þann 16. október 2010 í N1-deild karla. Framarar leiddu allan leikinn og þegar langt var liðið á síðari hálfleikinn var staðan 27-23 og allt útlit fyrir sigur heimamanna. En þá kom Stefán Guðnason í mark Akureyrar og hann lokaði hreinlega markinu (64% markvarsla), þetta nýtti Akureyrarliðið sér vel og vann á endanum 31-32. Hér má sjá þegar Stefán ver vítakast sem Einar Rafn Eiðsson tók en varslan er vægast sagt furðuleg en reyndist gríðarlega dýrmæt þegar upp var staðið.



Akureyri - FH 25-20 (19. nóv. 2015), svipmyndir
Akureyri - FH 25-20 (19. nóv. 2015), svipmyndir

Akureyri tók á móti FH í KA-Heimilinu í 14. umferð Olís deildar karla þann 19. nóvember 2015. Strax á upphafsmínútu leiksins dró til tíðinda þegar Halldór Logi Árnason fékk beint rautt spjald fyrir litlar sakir en heimamenn létu það ekki á sig fá og yfirspiluðu gestina. Ingimundur Ingimundarson skoraði með neglu rétt áður en fyrri hálfleik lauk og Akureyri leiddi 14-7 þegar flautað var til hlés. Síðari hálfleikur byrjaði vel fyrir heimamenn og fyrr en varir var staðan orðin 19-10 og spurningin í raun aðeins hve stór sigurinn yrði. En þá fór vélin að hiksta og gestirnir gengu á lagið, munurinn minnkaði og fengu FH-ingar tækifæri á að minnka forskotið niður í tvö mörk en tókst ekki. Akureyri endaði leikinn svo betur og landaði góðum 25-20 sigri. Fyrir leikinn var Akureyri í 9. sæti deildarinnar en FH í því 7. en með sigrinum skaust Akureyri upp fyrir FH. Eftir leik voru þjálfarar liðanna þeir Sverre Andreas Jakobsson og Halldór Jóhann Sigfússon teknir tali.



Hreiðar Levý ver tvö víti frá Óla Stef
Hreiðar Levý ver tvö víti frá Óla Stef

Valur og Akureyri mættust í Olís deildinni þann 31. október 2015 en goðsögnin Ólafur Stefánsson sneri aftur og lék sinn fyrsta leik fyrir Valsmenn í 19 ár. Eftir að fyrsta víti Valsmanna fór forgörðum fór Ólafur á vítapunktinn og reyndi fyrir sér gegn sínum fyrrum samherja í íslenska landsliðinu honum Hreiðari Levý Guðmundssyni. Óla tókst að skora tvö mörk af vítapunktinum en tvívegis sá Hreiðar við honum. Í fyrra skiptið kom Hreiðar boltanum í stöngina og út en í síðara skiptið náði hann að koma fæti í boltann en í bæði skiptin náði Akureyri boltanum og lagði af stað í sóknina. Hreiðar var ánægður eftir leik að ná að sjá við Óla en gat þó ekki verið alltof ánægður enda unnu Valsarar leikinn að lokum 26-23.



Jónatan Magnússon jafnar á lokasekúndunni gegn Val
Jónatan Magnússon jafnar á lokasekúndunni gegn Val

Valur og Akureyri mættust í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta tímabilið 2009-2010. Liðin höfðu unnið sitthvorn leikinn og mættust í svakalegum oddaleik þann 26. apríl 2010. Þegar 8 sekúndur lifðu leiks voru Akureyringar með boltann marki undir og reyndu að tryggja framlengingu. Það tókst eftir áhugaverða sókn en Árni Þór Sigtryggsson, Heimir Örn Árnason og Hreinn Hauksson létu boltann ganga á milli sín áður en boltinn endaði í höndum Jónatans Þórs Magnússonar sem hafði komið sér fyrir á línunni og skoraði af öryggi. Valsmenn reyndust hinsvegar sterkari í framlengingunni og fóru áfram í úrslitin. Þetta var síðasta mark Jonna fyrir Akureyri en hann yfirgaf félagið og gekk í raðir Kristiansund í Noregi.



Akureyri - Valur 19-27 (13. sept. 2015), svipmyndir
Akureyri - Valur 19-27 (13. sept. 2015), svipmyndir

Akureyri tók á móti Val í 2. umferð Olís deildar karla þann 13. september 2015. Leikurinn fór fram í KA-Heimilinu en Akureyri færði heimaleiki sína úr Höllinni yfir í KA-Heimilið fyrir tímabilið 2015-2016. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem staðan var 10-13 gestunum í vil þá gekk allt á afturfótunum hjá heimamönnum og Valsmenn gengu á lagið og unnu stórsigur, 19-27. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.



KA - ÍA 3-2 (29. júní 1988)
KA - ÍA 3-2 (29. júní 1988)

KA tók á móti ÍA í 7. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu árið 1988 þann 29. júní. Eftir góða byrjun á sumrinu hafði KA tapað tveimur leikjum í röð og bjuggust því flestir við sigri hjá gestunum frá Akranesi. En KA liðið lék frábæran fótbolta á Akureyrarvelli þennan daginn og komst yfir á 28. mínútu þegar Örn Viðar Arnarson skoraði laglegt mark, staðan var 1-0 í hálfleik. Gunnar Jónsson náði að jafna metin fyrir Skagamenn á 49. mínútu en Örn Viðar var svo aftur á ferðinni fyrir heimamenn þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 72. mínútu. Anthony Karl Gregory gerði svo útum leikinn með marki sínu á 77. mínútu en Haraldur Ingólfsson náði að laga stöðuna með marki í uppbótartíma, lokatölur því 3-2 fyrir KA.




« Previous Next »


User Detail Page

You can find user latest posts and related content on the page. Friends, comments for events / matches are also available on the page. Even you can find users who are same pleasure with current user.

#Travel, #SupportYourTeam, #AllAboutSports