KA tók á móti Pepsi deildarliði Fjölnis í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fór fram á Akureyrarvelli þann 6. júlí 2015. Fjölnisliðið hafði staðið sig vel í Pepsi deildinni á meðan KA var í 4. sæti 1. deildar og reiknuðu því eflaust margir með sigri gestanna. KA-menn mættu hinsvegar ákaflega vel stemmdir til leiks og voru strax eftir 8. mínútna leik komnir í 2-0. Davíð Rúnar Bjarnason skoraði fyrsta markið eftir klafs í teignum á 6. mínútu og síðar strax eftir skoraði Ævar Ingi Jóhannesson glæsilegt mark eftir sendingu yfir vörn Fjölnismanna. KA menn héldu áfram að vera sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en fleiri urðu mörkin ekki og staðan því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks. Mark Charles Mcgee minnkaði muninn á 52. mínútu og Fjölnisliðið allt í einu komið aftur inn í leikinn. Hinsvegar náðu heimamenn að loka vel og voru óheppnir að skora ekki eitt í viðbót en lokatölur 2-1 og KA áfram í undanúrslitin. Að lokum var svo rætt við Ævar Inga, Bjarna Jóhannsson þjálfara KA og Ágúst Þór Gylfason þjálfara Fjölnis. Myndband fengið úr umfjöllun Stöð 2 Sport um leikinn.