Ágúst Stefánsson's user profile page. Match highlights, posts and more on site!

“”

 Report User

Highlights

KA - ÍBV 6-3 (16. júlí 2017)
KA - ÍBV 6-3 (16. júlí 2017)

KA gjörsigraði ÍBV 6-3 í miklum markaleik á Akureyrarvelli þann 16. júlí 2017. Leikurinn var liður í 11. umferð Pepsi deildar karla en þrátt fyrir góðan sigur voru það gestirnir sem byrjuðu betur og komust í 0-2 eftir um kortérs leik. KA liðið gerði hinsvegar mjög vel í að koma sér aftur inn í leikinn og náði forystunni skömmu fyrir hálfleik. Liðið náði á endanum fjögurra marka forskoti áður en gestirnir löguðu stöðuna í uppbótartíma. Mörkin gerðu: 0 – 1 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (’13) 0 – 2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (’15) 1 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’18) 2 – 2 Davíð Rúnar Bjarnason (’39) 3 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’48) 4 – 2 Almarr Ormarsson (’53) 5 – 2 Emil Sigvardsen Lyng (’71) 6 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’79) 6 – 3 Arnór Gauti Ragnarsson (’91) Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV



N1 mót KA í knattspyrnu 2017
N1 mót KA í knattspyrnu 2017

31. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 5. júlí - 8. júlí 2017. Um er að ræða stærsta mótið hingað til, keppendur um 1.900, 188 lið frá 40 félögum og alls 792 leikir sem gera 23.760 mínútur af fótbolta en á þeim tíma gerðu strákarnir 3566 mörk! Mótið heppnaðist mjög vel og ríkti mikil gleði á mótinu og ekki skemmdi fyrir að veðrið var mjög gott. KA-TV sýndi frá mótinu og var vel fylgst með útsendingunum. Sigurvegarar á mótinu N1 mótsmeistari: KA Argentíska deildin: Fram 1 Brasilíska deildin: KA 3 Chile deildin: Grindavík 1 Danska deildin: KA 8 Enska deildin: Fram 6 Franska deildin: KA 11 Gríska deildin: Dalvík/KF 3 Stuðboltar mótsins: ÍA Háttvísisverðlaun Sjóvá: Þróttur Vogum Sveinsbikarinn: HK (háttvísi innan sem utan vallar) Skotfastasti leikmaðurinn: Guðmundur Jónsson, Keflavík. 89 km/klst Menn leiksins í úrslitaleik Argentísku deildarinnar: Fram 1: Stefán Orri Hákonarson Selfoss 1: Einar Breki Sverrisson Menn leiksins í úrslitaleik Brasilísku deildarinnar: KA 2: Ari Valur Atlason KA 3: Valdimar Logi Sævarsson Menn leiksins í úrslitaleik Chile deildarinnar: Grindavík 1: Andri Daði Rúriksson Höttur 1: Þorlákur Breki Þórarinsson Baxter Menn leiksins í úrslitaleik Dönsku deildarinnar: KA 8: Mikael Breki Þórðarson HK 6: Mikael Geir Gunnarsson Menn leiksins í úrslitaleik Ensku deildarinnar: Fram 6: Pétur Snær Breiðablik 8: Alex Darri Menn leiksins í úrslitaleik Frönsku deildarinnar: KA 11: Þormar Sigurðsson KR 7: Ásgrímur Daníel Víðisson Menn leiksins í úrslitaleik Grísku deildarinnar: Tindastóll 3: Björn Jökull Bjarkason Dalvík/KF 3: Elvar Karl Myndataka: Elvar Örn Egilsson og Ágúst Stefánsson Drónaskot: TimeRules og Mint Productions Klipping og önnur eftirvinnsla: Ágúst Stefánsson



Valur - KA 1-0 (18. júní 2017)
Valur - KA 1-0 (18. júní 2017)

Valur og KA mættust á Valsvelli í 8. umferð Pepsi deildar karla þann 18. júní 2017. Fyrir leikinn voru Valsmenn á toppnum með 16 stig en lið KA var í 4. sæti með 12 stig. Það dró til tíðinda strax á 2. mínútu þegar Darko Bulatovic gerði sjálfsmark sem reyndist vera eina mark leiksins. KA liðið reyndi hvað það gat til að jafna metin og fékk ágætis líflínu þegar Bjarni Ólafur Eiríksson fékk sitt annað gula spjald. En inn vildi boltinn ekki og heimamenn unnu góðan sigur. Þjálfarar liðanna þeir Ólafur Jóhannesson og Srdjan Tufegdzic (Tufa) voru svo gripnir í viðtal að leik loknum. Tekið úr fréttatíma RÚV.



Víkingur Ó. - KA 1-4 (5. júní 2017)
Víkingur Ó. - KA 1-4 (5. júní 2017)

Víkingur Ólafsvík tók á móti KA í 6. umferð Pepsi deildarinnar þann 5. júní 2017. Fyrir leikinn var KA í 4. sæti deildarinnar með 8 stig en heimamenn á botninum með 3 stig. Það tók KA ekki langan tíma að ná forystunni en Emil Sigvardsen Lyng skoraði strax á 3. mínútu leiksins. Hann var svo aftur á ferðinni á 21. mínútu og KA var 0-2 yfir í hálfleik. Aftur voru KA-menn snöggir að skora í þeim síðari en Elfar Árni Aðalsteinsson gerði þriðja mark liðsins á 48. mínútu. Gunnlaugur Hlynur Birgisson lagaði stöðuna á 86. mínútu fyrir heimamenn en Emil Lyng fullkomnaði þrennuna skömmu síðar úr vítaspyrnu sem Ásgeir Sigurgeirsson sótti. Góður 1-4 sigur KA staðreynd og góð stigasöfnun liðsins heldur áfram. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.



Stjarnan - KA 2-1 (21. maí 2017)
Stjarnan - KA 2-1 (21. maí 2017)

KA og Stjarnan mættust á gervigrasinu á Samsungvellinum í Garðabæ í 4. umferð Pepsi-deildarinnar þann 21. maí 2017. Guðjón Baldvinsson kom heimamönnum yfir en Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin og staðan var 1-1 í hálfleik. En það var Eyjólfur Héðinsson sem skoraði úrslitamarkið þegar hann skoraði seint í uppbótartíma og 2-1 sigur Stjörnumanna staðreynd. Fengið úr fréttatíma RÚV.



Stjarnan - Þór/KA 1-3 (29. maí 2017)
Stjarnan - Þór/KA 1-3 (29. maí 2017)

Íslandsmeistarar Stjörnunnar og Þór/KA mættust í toppslag í 7. umferð Pepsi deildar kvenna þann 29. maí 2017. Bæði lið voru taplaus fyrir leikinn en Þór/KA á toppnum með fullt hús stiga. Agla María Albertsdóttir kom Stjörnunni yfir strax á 3. mínútu en Sandra Mayor, Natalia Gomez og Hulda Ósk Jónsdóttir svöruðu fyrir Þór/KA sem vann sterkan 1-3 sigur í Garðabænum. Fengið úr fréttatíma RÚV.



KA - Fjölnir 2-0 (14. maí 2017)
KA - Fjölnir 2-0 (14. maí 2017)

KA hélt áfram góðri byrjun sinni í Pepsi deildinni þegar liðið lagði Fjölni 2-0 á Akureyrarvelli þann 14. maí 2017 en þetta var fyrsti heimaleikur KA á tímabilinu. Elfar Árni Aðalsteinsson gerði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu og Emil Sigvardsen Lyng kláraði leikinn með laglegu marki á 58. mínútu. Nýliðar KA eru því á toppi deildarinnar með 7 stig eftir þrjá leiki. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.



FH - KA 2-2 (8. maí 2017)
FH - KA 2-2 (8. maí 2017)

Nýliðar KA mættu Íslandsmeisturum FH á Kaplakrikavelli þann 8. maí 2017 í 2. umferð Pepsi deildar karla. Bæði lið höfðu unnið góða sigra í opnunarleik sínum og þrátt fyrir að KA væri nýliði í deildinni léku bæði lið til sigurs. KA hóf leikinn betur og Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á 22. mínútu. En FH-ingar komu sterkir til baka og Steven Lennon jafnaði á 36. mínútu og var því jafnt 1-1 þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn náðu svo forystunni þegar Kristján Flóki Finnbogason skoraði með skalla á 60. mínútu. KA-menn hinsvegar komu til baka og pressuðu Íslandsmeistarana stíft síðustu mínúturnar og það var á lokasekúndum leiksins þegar Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin í 2-2 og jafntefli niðurstaðan. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.




« Previous Next »


User Detail Page

You can find user latest posts and related content on the page. Friends, comments for events / matches are also available on the page. Even you can find users who are same pleasure with current user.

#Travel, #SupportYourTeam, #AllAboutSports