Nýliðar KA mættu Íslandsmeisturum FH á Kaplakrikavelli þann 8. maí 2017 í 2. umferð Pepsi deildar karla. Bæði lið höfðu unnið góða sigra í opnunarleik sínum og þrátt fyrir að KA væri nýliði í deildinni léku bæði lið til sigurs. KA hóf leikinn betur og Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á 22. mínútu. En FH-ingar komu sterkir til baka og Steven Lennon jafnaði á 36. mínútu og var því jafnt 1-1 þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn náðu svo forystunni þegar Kristján Flóki Finnbogason skoraði með skalla á 60. mínútu. KA-menn hinsvegar komu til baka og pressuðu Íslandsmeistarana stíft síðustu mínúturnar og það var á lokasekúndum leiksins þegar Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin í 2-2 og jafntefli niðurstaðan. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.