KA og Stjarnan mættust á gervigrasinu á Samsungvellinum í Garðabæ í 4. umferð Pepsi-deildarinnar þann 21. maí 2017. Guðjón Baldvinsson kom heimamönnum yfir en Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin og staðan var 1-1 í hálfleik. En það var Eyjólfur Héðinsson sem skoraði úrslitamarkið þegar hann skoraði seint í uppbótartíma og 2-1 sigur Stjörnumanna staðreynd. Fengið úr fréttatíma RÚV.