Content removal request!


Valur - KA 1-0 (18. júní 2017)

Valur og KA mættust á Valsvelli í 8. umferð Pepsi deildar karla þann 18. júní 2017. Fyrir leikinn voru Valsmenn á toppnum með 16 stig en lið KA var í 4. sæti með 12 stig. Það dró til tíðinda strax á 2. mínútu þegar Darko Bulatovic gerði sjálfsmark sem reyndist vera eina mark leiksins. KA liðið reyndi hvað það gat til að jafna metin og fékk ágætis líflínu þegar Bjarni Ólafur Eiríksson fékk sitt annað gula spjald. En inn vildi boltinn ekki og heimamenn unnu góðan sigur. Þjálfarar liðanna þeir Ólafur Jóhannesson og Srdjan Tufegdzic (Tufa) voru svo gripnir í viðtal að leik loknum. Tekið úr fréttatíma RÚV.