Víkingur Ólafsvík tók á móti KA í 6. umferð Pepsi deildarinnar þann 5. júní 2017. Fyrir leikinn var KA í 4. sæti deildarinnar með 8 stig en heimamenn á botninum með 3 stig. Það tók KA ekki langan tíma að ná forystunni en Emil Sigvardsen Lyng skoraði strax á 3. mínútu leiksins. Hann var svo aftur á ferðinni á 21. mínútu og KA var 0-2 yfir í hálfleik. Aftur voru KA-menn snöggir að skora í þeim síðari en Elfar Árni Aðalsteinsson gerði þriðja mark liðsins á 48. mínútu. Gunnlaugur Hlynur Birgisson lagaði stöðuna á 86. mínútu fyrir heimamenn en Emil Lyng fullkomnaði þrennuna skömmu síðar úr vítaspyrnu sem Ásgeir Sigurgeirsson sótti. Góður 1-4 sigur KA staðreynd og góð stigasöfnun liðsins heldur áfram. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.