Ágúst Stefánsson's user profile page. Match highlights, posts and more on site!“” Report User |
Bergvin Þór Gíslason yfirgaf herbúðir Akureyrar Handboltafélags eftir tímabilið 2016-2017 en kappinn hefur leikið 159 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 367 mörk. Hér má sjá nokkur mörk hans fyrir félagið.
Akureyri sótti topplið ÍBV heim í næst síðustu umferð Olís deildar karla þann 29. mars 2017. Flestir reiknuðu með öruggum sigri heimamanna en Akureyringar gáfu allt í leikinn og úr varð hörkuleikur. Á endanum var það Andri Snær Stefánsson sem jafnaði metin með marki á lokasekúndunni og lokatölur voru 22-22. Rætt er við þá Ingimund Ingimundarson og Arnar Pétursson þjálfara liðanna. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV og útsendingu RÚV 2.
Akureyri sótti ÍBV heim í næst síðustu umferð Olís deildar karla þann 29. mars 2017. Fyrir leikinn bjuggust flestir við öruggum sigri heimamanna enda á toppi deildarinnar en Akureyringar á botninum. Úr varð hinsvegar svakalegur leikur og jafnaði Andri Snær Stefánsson metin með marki úr þröngu færi á lokasekúndu leiksins, 22-22! Markið er fengið úr útsendingu ÍBV-TV frá leiknum.
Akureyri vann glæsilegan 18-21 útisigur á Gróttu í Olísdeild karla þann 13. nóvember 2016. Þegar 2 mínútur lifðu leiks var staðan jöfn 18-18 en magnaður lokakafli gestanna tryggði sterkan þriggja marka sigur.
Jónatan Magnússon lék með íslenska landsliðinu í handbolta í leik gegn pressuliðinu árið 2002. Hér má sjá hann skora fyrir landsliðið sem vann leikinn 32-27.
Akureyri tók á móti Aftureldingu í KA-Heimilinu þann 23. mars 2016. Gestirnir byrjuðu betur og leiddu 9-14 í hálfleik en Akureyringar komu sterkir til baka og úr varð hörkuleikur. Mosfellingar stóðu svo uppi sem sigurvegarar 24-26.
Ingólfur Axelsson skoraði eftirminnilegt mark í bikarúrslitaleik KA og Fram árið 2004 þegar hann tók hálfgert keiluskot í gegnum klof tveggja Framara áður en boltinn lá í netinu! Þetta var þriðja mark Ingólfs í leiknum sem KA vann mjög sannfærandi og tryggði sér þriðja Bikarmeistaratitilinn í sögu félagsins.
Grótta tók á móti Akureyri í 25. umferð Olís deildar karla þann 17. mars 2016. Bæði lið eru í harðri baráttu um að ná sem bestu sæti í úrslitakeppninni auk þess sem Akureyri gat enn fallið. Eftir hörkuleik þar sem Seltirningar leiddu lengst af varð jafntefli niðurstaðan og því enn gríðarleg spenna fyrir miðri deild. Á sama tíma lögðu Víkingar ÍR og er Akureyri því öruggt með sæti í deildinni að ári og er komið í úrslitakeppnina.