Content removal request!


KA - Fjölnir 2-0 (14. maí 2017)

KA hélt áfram góðri byrjun sinni í Pepsi deildinni þegar liðið lagði Fjölni 2-0 á Akureyrarvelli þann 14. maí 2017 en þetta var fyrsti heimaleikur KA á tímabilinu. Elfar Árni Aðalsteinsson gerði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu og Emil Sigvardsen Lyng kláraði leikinn með laglegu marki á 58. mínútu. Nýliðar KA eru því á toppi deildarinnar með 7 stig eftir þrjá leiki. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.