KA gjörsigraði ÍBV 6-3 í miklum markaleik á Akureyrarvelli þann 16. júlí 2017. Leikurinn var liður í 11. umferð Pepsi deildar karla en þrátt fyrir góðan sigur voru það gestirnir sem byrjuðu betur og komust í 0-2 eftir um kortérs leik. KA liðið gerði hinsvegar mjög vel í að koma sér aftur inn í leikinn og náði forystunni skömmu fyrir hálfleik. Liðið náði á endanum fjögurra marka forskoti áður en gestirnir löguðu stöðuna í uppbótartíma. Mörkin gerðu: 0 – 1 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (’13) 0 – 2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (’15) 1 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’18) 2 – 2 Davíð Rúnar Bjarnason (’39) 3 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’48) 4 – 2 Almarr Ormarsson (’53) 5 – 2 Emil Sigvardsen Lyng (’71) 6 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’79) 6 – 3 Arnór Gauti Ragnarsson (’91) Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV