KA og Stjarnan mættust í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997. KA var með heimaleikjarétt í einvíginu en liðið endaði í 3. sæti Nissan-deildarinnar en Stjarnan í 6. sæti. Það var búist við hörkubaráttu í einvíginu og Stjörnumenn áttu eftir að koma mörgum á óvart þá sérstaklega í fyrsta leik liðanna sem fram fór í KA-Heimilinu þann 17. mars 1997. Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson, Hörður Flóki Ólafsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Halldór Jóhann Sigfússon, Jakob Jónsson og Sverre Andreas Jakobsson úti. Mörk KA: Sergei Ziza 4 (1 úr víti), Sævar Árnason 3, Róbert Julian Duranona 2, Leó Örn Þorleifsson 2, Jakob Jónsson 1, Heiðmar Felixson 1, Björgvin Þór Björgvinsson (1 úr víti)