Content removal request!


KA - Afturelding 24-22, úrslit 1997 leikur 4 og fögnuður KA manna

KA tók á móti Aftureldingu í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997 þann 12. apríl 1997. KA hafði náð heimaleikjaréttinum og gat með sigri í KA-Heimilinu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skiptið í sögu félagsins. Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Þorvaldur Þorvaldsson, Jakob Jónsson, Sverre Andreas Jakobsson og Alfreð Gíslason úti. Mörk KA: Róbert Julian Duranona 11 (1 úr víti), Jakob Jónsson 3, Jóhann Gunnar Jóhannsson 3, Sergei Ziza 2, Leó Örn Þorleifsson 2, Björgvin Þór Björgvinsson 2 og Alfreð Gíslason 1 Þá má sjá fögnuð KA manna að leik loknum sem var ógurlegur enda tókst loksins að ná Íslandsmeistaratitlinum norður og Alfreð Gíslason var kvaddur með þökkum.