KA varð að leggja Hauka að velli í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta 1996-1997 en leikurinn fór fram þann 27. mars 1997. Haukar sigruðu fyrsta leik liðanna og KA þurfti sigur í KA-Heimilinu til að knýja fram oddaleik. Þess má geta að Alfreð Gíslason handarbrotnaði í leiknum en lét það ekki stöðva sig og kláraði leikinn og reyndar alla leikina sem eftir voru á tímabilinu, þvílík harka! Þessir léku fyrir KA: Guðmundur Arnar Jónsson og Hermann Karlsson í markinu. Leó Örn Þorleifsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Róbert Julian Duranona, Sergei Ziza, Erlingur Kristjánsson, Sævar Árnason, Heiðmar Felixson, Jakob Jónsson, Sverre Andreas Jakobsson og Alfreð Gíslason úti. Mörk KA: Róbert Julian Duranona 10, Sergei Ziza 8 (4 úr vítum), Leó Örn Þorleifsson 4, Jóhann Gunnar Jóhannsson 3, Sævar Árnason 3 og Björgvin Þór Björgvinsson 2