KA lék í fyrsta skiptið í úrslitum Bikarkeppninnar í Knattspyrnu þegar liðið lék gegn Val sumarið 1992. KA hóf leikinn mun betur og komst yfir á 30. mínútu með marki Gunnars Más Mássonar og Ormarr Örlygsson kom liðinu í 2-0 með marki á 32. mínútu. Valsmönnum tókst hinsvegar að jafna metin eftir furðulega mikinn uppbótartíma. Í framlengingunni voru Valsmenn svo sterkari og sigruðu. Fyrrum leikmaður KA, Anthony Karl Gregory, lék vel og skoraði þrennu.