KA tók á móti ÍA í 7. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu árið 1988 þann 29. júní. Eftir góða byrjun á sumrinu hafði KA tapað tveimur leikjum í röð og bjuggust því flestir við sigri hjá gestunum frá Akranesi. En KA liðið lék frábæran fótbolta á Akureyrarvelli þennan daginn og komst yfir á 28. mínútu þegar Örn Viðar Arnarson skoraði laglegt mark, staðan var 1-0 í hálfleik. Gunnar Jónsson náði að jafna metin fyrir Skagamenn á 49. mínútu en Örn Viðar var svo aftur á ferðinni fyrir heimamenn þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 72. mínútu. Anthony Karl Gregory gerði svo útum leikinn með marki sínu á 77. mínútu en Haraldur Ingólfsson náði að laga stöðuna með marki í uppbótartíma, lokatölur því 3-2 fyrir KA.