Valur og Akureyri mættust í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta tímabilið 2009-2010. Liðin höfðu unnið sitthvorn leikinn og mættust í svakalegum oddaleik þann 26. apríl 2010. Þegar 8 sekúndur lifðu leiks voru Akureyringar með boltann marki undir og reyndu að tryggja framlengingu. Það tókst eftir áhugaverða sókn en Árni Þór Sigtryggsson, Heimir Örn Árnason og Hreinn Hauksson létu boltann ganga á milli sín áður en boltinn endaði í höndum Jónatans Þórs Magnússonar sem hafði komið sér fyrir á línunni og skoraði af öryggi. Valsmenn reyndust hinsvegar sterkari í framlengingunni og fóru áfram í úrslitin. Þetta var síðasta mark Jonna fyrir Akureyri en hann yfirgaf félagið og gekk í raðir Kristiansund í Noregi.