Ágúst Stefánsson's user profile page. Match highlights, posts and more on site!“” Report User |
Valur tók á móti Akureyri þann 3. febrúar 2016 í fyrsta leiknum í Olís deild karla eftir jóla og EM frí. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik þar sem staðan var 12-11 fyrir heimamenn áttu gestirnir að norðan erfitt með að skora og Valsarar unnu að lokum öruggan 22-15 sigur. Akureyri setti þar með nýtt félagsmet en aldrei hefur liðið skorað jafn fá mörk í einum leik. Efni tekið úr fréttatíma RÚV
Akureyri tók á móti ÍBV í svakalegum leik í KA-Heimilinu þann 17. desember 2015. Liðin voru nýlega búin að gera jafntefli í Eyjum og gerðu aftur jafntefli, nú 25-25. Akureyri var í góðri stöðu 25-23 þegar lítið var eftir en Eyjamenn gerðu vel og náðu stigi. Það var mögnuð stemning í KA-Heimilinu í leiknum og minnti sannarlega á gamla góða tíma. Tekið úr fréttatíma RÚV
Hér má sjá umfjöllun Íþróttalífsins á RÚV um hvernig það er að vera handboltadómari. Tekinn var fyrir leikur ÍR og Hauka í Austurbergi þann 3. desember 2015, en Haukar unnu leikinn 20-26. Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson dæmdu leikinn en þeir hafa dæmt handbolta saman í 34 ár. Umsjón með Íþróttalífinu hafa þau Edda Sif Pálsdóttir og Pálmar Ragnarsson.
Akureyri tekur á móti ÍBV í síðasta leik liðsins fyrir jólafrí. Sigur í leiknum tryggir liðinu sæti í efri hluta deildarinnar sem myndi þýða að liðið fengi 5 heimaleiki í lokaumferðinni í stað 4.
Grótta tók á móti Akureyri í 17. umferð Olís deildar karla þann 12. desember 2015. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn og voru mikilvæg stig í boði enda myndi liðið sem færi með sigur af hólmi kveðja botnbaráttuna og blanda sér hressilega í baráttuna fyrir miðri deildinni. Eftir hörkuleik þar sem liðin skiptust á að leiða fóru gestirnir frá Akureyri með sigur af hólmi, 28-29. Bergvin Þór Gíslason fór á kostum fyrir gestina og gerði 13 mörk. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.
Grótta tók á móti Akureyri þann 21. mars árið 2010 en fyrir leikinn var fastlega reiknað með sigri Akureyrarliðsins sem var í toppbaráttu en Grótta hafði nýlega skipt um þjálfarateymi. En Seltirningar léku frábærlega í leiknum og unnu 29-26 eftir að hafa haft góða forystu lengst af í leiknum. Andri Snær Stefánsson var besti leikmaður gestanna og skoraði 8 mörk í leiknum en hann var sérstaklega öruggur á vítalínunni þar sem hann nýtti öll 6 vítin sem hann tók, reyndar skoraði hann úr öllum skotum sínum í leiknum.
ÍBV og Akureyri mættust í Vestmannaeyjum þann 9. desember 2015 en leiknum hafði verið frestað í þrígang. Aðeins einu stigi munaði á liðunum fyrir leikinn og gat Akureyri komið sér enn betur inn í baráttuna fyrir miðri deild með sigri eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Það leit allt út fyrir að gestirnir myndu fara með sigur af hólmi en liðið leiddi nær allan leikinn og komst í 10-17 í síðari hálfleik. En Eyjamenn komu sterkir til baka og jöfnuðu leikinn. Akureyri fékk vítakast þegar skammt lifði leiks en Stephen Nielsen varði vítið og lokatölur því 21-21 jafntefli. Upptakan fengin úr fréttatíma RÚV.
Akureyri burstaði FH í Kaplakrika þann 20. nóvember 2010, lokatölur voru 25-33 fyrir Akureyri en mest náði liðið 12 marka forskoti í stöðunni 19-31. Markvörðurinn knái, Sveinbjörn Pétursson, átti magnaðan leik og varði 28 skot sem gerir 53% markvörslu. Svo frábær var Sveinbjörn að hann vann sér inn millinafnið ver hjá lýsanda leiksins. Þetta eru flest skot sem markvörður hefur varið í einum leik hjá Akureyri en Sveinbjörn hefur tvívegis varið 28 skot fyrir félagið en fyrra skiptið var í leik gegn ÍBV þann 15. desember 2007.