Content removal request!


Gísli og Hafsteinn dæma leik ÍR og Hauka (2015) - Íþróttalífið

Hér má sjá umfjöllun Íþróttalífsins á RÚV um hvernig það er að vera handboltadómari. Tekinn var fyrir leikur ÍR og Hauka í Austurbergi þann 3. desember 2015, en Haukar unnu leikinn 20-26. Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson dæmdu leikinn en þeir hafa dæmt handbolta saman í 34 ár. Umsjón með Íþróttalífinu hafa þau Edda Sif Pálsdóttir og Pálmar Ragnarsson.