Grótta tók á móti Akureyri þann 21. mars árið 2010 en fyrir leikinn var fastlega reiknað með sigri Akureyrarliðsins sem var í toppbaráttu en Grótta hafði nýlega skipt um þjálfarateymi. En Seltirningar léku frábærlega í leiknum og unnu 29-26 eftir að hafa haft góða forystu lengst af í leiknum. Andri Snær Stefánsson var besti leikmaður gestanna og skoraði 8 mörk í leiknum en hann var sérstaklega öruggur á vítalínunni þar sem hann nýtti öll 6 vítin sem hann tók, reyndar skoraði hann úr öllum skotum sínum í leiknum.