Í kvöld fóru fram leikur KR og Stjörnunar í fyrstu umferð Iceland Express deildar karla. Leikurinn fór í framlengingu en KR hafði sigur að lokum 108 - 90. Kjartan lék í 27 mínutur í leiknum. Skoraði 5 þriggjastiga körfur og var með 17 stig í allt.
KR var 24 stigum undir en skoraði síðustu 14 stigin í leiknum til að vinna Stjörnuna á útivelli. KRTV lýsti leiknum beint og fóru lýsendur hamförum. Myndatökumaðurinn gleymdi sér á lykilstundu enda spennan ótrúleg.
Snorri og Jói í dabbfilms fóru í DHL höllina og tóku nokkur viðtöl og svipmyndir úr leiknum sem var bráðskemmtilegur. 6. nóvember 2008