KA TV's user profile page. Match highlights, posts and more on site!

“”

 Report User

Highlights

KA - Leiknir F. 4-0 (11. ágúst 2016), mörkin
KA - Leiknir F. 4-0 (11. ágúst 2016), mörkin

KA vann magnaðan 4-0 sigur á Leikni frá Fáskrúðsfirði á Akureyrarvelli þann 11. ágúst 2016 í 15. umferð Inkasso deildarinnar. 1 - 0 Aleksandar Trninic (’45) Stoðsending: Elfar 2 - 0 Elfar Árni Aðalsteinsson (’59) Stoðsending: Juraj 3 - 0 Aleksandar Trninic (’71) Stoðsending: Grímsi 4 - 0 Ólafur Aron Pétursson (’91) Stoðsending: Bjarki



Grindavík - KA 2-2 (12. júlí 2016), mörkin
Grindavík - KA 2-2 (12. júlí 2016), mörkin

Grindavík tók á móti KA í 10. umferð Inkasso deildarinnar þann 12. júlí 2016. Juraj Grizelj kom KA yfir með glæsilegu marki í upphafi leiks og Hallgrímur Mar tvöfaldaði forystuna eftir mistök Hlyns í markinu og staðan var því 0-2 fyrir KA í hálfleik. En heimamenn hófu síðari hálfleikinn vel þegar Fransisco Eduardo Cruz Lemaur minnkaði muninn strax og úr varð leikur að nýju. Jósef Kristinn Jósefsson jafnaði svo loks metin á 82. mínútu og liðin skildu jöfn 2-2. KA jók forystuna á toppnum með jafnteflinu.



N1 mót KA í knattspyrnu 2016 (4K)
N1 mót KA í knattspyrnu 2016 (4K)

30. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 29. júní - 2. júlí 2016. Um er að ræða stærsta mótið hingað til, keppendur um 1.900, 182 lið frá 40 félögum og alls 758 leikir sem gera 22.740 mínútur af fótbolta! TimeRules (www.timerules.org) margmiðlunar framleiðslufyrirtæki frá Húsavík mætti á KA svæðið og gerði þetta glæsilega myndband um mótið. Mótið heppnaðist mjög vel og ríkti mikil gleði á mótinu þrátt fyrir að sólin hafi lítið látið sjá sig. SportTV sýndi frá mótinu og var vel fylgst með útsendingum þeirra. Sigurvegarar á mótinu N1 mótsmeistari: Breiðablik Argentíska deildin: Víkingur 1 Brasilíska deildin: Grótta 1 Chile deildin: Fylkir 3 Danska deildin: ÍR 3 Enska deildin: Breiðablik 9 Franska deildin: Fjölnir 6 Gríska deildin: Stjarnan 9 Stuðboltar mótsins: Þróttur Reykjavík Háttvísisverðlaun Sjóvá: Fjölnir Sveinsbikarinn: Reynir/Víðir (háttvísi innan sem utan vallar) Skotfastasti leikmaðurinn: Geir Sigurbjörn Ólafsson Bestu leikmenn Argentísku deildarinnar: Markmaður: Torfi Geir Halldórsson, Fram Varnarmaður: Guðmundur Búason, Fjölnir Sóknarmaður: Ísak Daði Ívarsson, Víkingur Bestu leikmenn Brasilísku deildarinnar: Markmaður: Kári Hrafn Hannesson, Fjölnir Varnarmaður: Ragnar Björn Bragason, Grótta Sóknarmaður: Orri Steinn Óskarsson, Grótta Bestu leikmenn Chile deildarinnar: Markmaður: Heiðar Máni Hermannsson, Fylkir Varnarmaður: Þórður Ingi Ingimundarson, Fylkir Sóknarmaður: Aron Bjarki Hallson, Fjölnir Bestu leikmenn Dönsku deildarinnar: Markmaður: Rajko Rajkovic, KA Varnarmaður: Ari Valur Atlason, KA Sóknarmaður: Róbert Quental, ÍR Bestu leikmenn Ensku deildarinnar: Markmaður: Kristján Ragnar Pálsson, Þór Varnarmaður: Aron Unnarsson, Breiðablik Sóknarmaður: Jóhann Breki Þórhallsson, Breiðablik Bestu leikmenn Frönsku deildarinnar: Markmaður: Ævar Freyr Valbjörnsson, KA Varnarmaður: Ólafur Sveinn Valgeirsson, Fjölnir Sóknarmaður: Davíð Orri Tryggvason, Fjölnir Bestu leikmenn Grísku deildarinnar: Markmaður: Aron Hafþórsson, Stjarnan Varnarmaður: Jóhannes Ómarsson, KR Sóknarmaður: Baldur Hrafn Ákason, Stjarnan



Frétt RÚV um N1 mót KA 2016
Frétt RÚV um N1 mót KA 2016

30. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 29. júní til 2. júlí. Ríkissjónvarpið kíkti á svæðið og má sjá frétt þeirra um mótið hér.



Leiknir F - KA | Inkasso deildin (29. maí 2016)
Leiknir F - KA | Inkasso deildin (29. maí 2016)

Bein útsending KA-TV frá leik Leiknis F og KA í 4. umferð Inkasso deildarinnar. Leikurinn fer fram í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði.



2. fl: KA/Dalvík/Reynir - Fjölnir 1-1 (23. maí 2016)
2. fl: KA/Dalvík/Reynir - Fjölnir 1-1 (23. maí 2016)

KA/Dalvík/Reynir tók á móti Fjölni í 2. flokki þann 23. maí 2016 á KA-velli. Gestirnir komust yfir á 19. mínútu með marki frá Djordje Pjanic en Árni Björn Eiríksson jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks. Fjölnismenn fengu svo úrvalstækifæri þegar þeir fengu vítaspyrnu er 10 mínútur lifðu leiks til að taka öll stigin heim en Aron Dagur Birnuson í marki KA varði glæsilega og aftur eftir frákast og sá til þess að leikurinn fór 1-1




« Previous Next »


User Detail Page

You can find user latest posts and related content on the page. Friends, comments for events / matches are also available on the page. Even you can find users who are same pleasure with current user.

#Travel, #SupportYourTeam, #AllAboutSports