Grindavík tók á móti KA í 10. umferð Inkasso deildarinnar þann 12. júlí 2016. Juraj Grizelj kom KA yfir með glæsilegu marki í upphafi leiks og Hallgrímur Mar tvöfaldaði forystuna eftir mistök Hlyns í markinu og staðan var því 0-2 fyrir KA í hálfleik. En heimamenn hófu síðari hálfleikinn vel þegar Fransisco Eduardo Cruz Lemaur minnkaði muninn strax og úr varð leikur að nýju. Jósef Kristinn Jósefsson jafnaði svo loks metin á 82. mínútu og liðin skildu jöfn 2-2. KA jók forystuna á toppnum með jafnteflinu.