KA/Dalvík/Reynir tók á móti Fjölni í 2. flokki þann 23. maí 2016 á KA-velli. Gestirnir komust yfir á 19. mínútu með marki frá Djordje Pjanic en Árni Björn Eiríksson jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks. Fjölnismenn fengu svo úrvalstækifæri þegar þeir fengu vítaspyrnu er 10 mínútur lifðu leiks til að taka öll stigin heim en Aron Dagur Birnuson í marki KA varði glæsilega og aftur eftir frákast og sá til þess að leikurinn fór 1-1