Leikbrot's user profile page. Match highlights, posts and more on site!“” Report User |
http://www.leikbrot.is/2011/11/27/kafli-ur-leik-kr-gegn-ir/
Keflavík lagði Njarðvík í Ljónagrifjunni í Njarðvík nú rétt í þessu. Njarðvík byrjaði leikinn betur en þegar Keflavíkurstúlkur skiptu í svæðispressu fóru hlutirnir að ganga upp fyrir þær. Þrátt fyrir að vera ekki að stela mörgum boltum var eins og liðið fengi mikið sjálftraust við að spila þessa vörn og um leið kom aukið hik í leik Njarðvíkurkvenna. Staðan í hálfleik var 36 -48 Keflavík í vil. Njarðvík náði fótunum að nýju í seinni hálfleik meðal annars með sterkri svæðisvörn. Lokamínúturnar voru því hörkuspennandi en Njarðvík tókst aldrei að komast yfir. Lokatölur 64 -67
Hér er karfan sem allir eru að tala um. Keflvíkingar voru þremur stigum yfir og 7 sekúndur eftir af leiktímanum kemur Pavel Ermolinski boltanum á Brynjar Þór Björnsson sem tekur skotið yfir Hörð Axel og það tæpum þremur metrum fyrir utan þriggjastigalínuna og jafnar leikinn. Keflavík var betra liðið í framlengingunni og vann sanngjarnann sigur í leiknum. Við fáum því að minnsta kosti einn leik til viðbótar á milli þessara frábæru liða
Það var allt annað að sjá varnarleik Stjörnunnar í leiknum gegn Grindavík í gær. Það vakti athygli viðstaddra að menn eins og Marvin Valdimarson og Jovan Zdravevski að spila hörkuvörn á þá Nick Bradford sem náði sér ekki á strik í leiknum og Pál Axel sem var funheitur í upphafi leiks en varnarleikur þeirra félaga varð til þess að tækifærin sem Páll fékk urði færri og færri þegar leið á leikinn. Sameginlegt áták Fannars Helgasonar, Renato Lindmets og Stjörnuliðsins gerði Ryan Pettinella erfitt fyrir. Teitur Örlygsson var ánægður með varnarleik sinna manna og vildi meina að Stjarnan væri aðeins skrefi frá markmiði vetrarins. Leikbrot.is