Njarðvik - Keflavik #2 by @Leikbrot - Post Details

Njarðvik - Keflavik #2

Keflavík lagði Njarðvík í Ljónagrifjunni í Njarðvík nú rétt í þessu. Njarðvík byrjaði leikinn betur en þegar Keflavíkurstúlkur skiptu í svæðispressu fóru hlutirnir að ganga upp fyrir þær. Þrátt fyrir að vera ekki að stela mörgum boltum var eins og liðið fengi mikið sjálftraust við að spila þessa vörn og um leið kom aukið hik í leik Njarðvíkurkvenna. Staðan í hálfleik var 36 -48 Keflavík í vil. Njarðvík náði fótunum að nýju í seinni hálfleik meðal annars með sterkri svæðisvörn. Lokamínúturnar voru því hörkuspennandi en Njarðvík tókst aldrei að komast yfir. Lokatölur 64 -67

Similar Posts!