Fyrsti leikur liðanna lauk með sigri eyjamanna en ÍBV voru sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Næsti leikur fer fram í Kaplakrika þann 15. maí kl. 19:30. Mætum þangað og förum með sigur af hólmi. Lag: B.o.B - Is It War
Helstu atriði úr leik Breiðabliks og Stjörnunnar í Lengjubikar kvenna sem fram fór í Fífunni 26.03.2018 og lauk 3:2.
Myndband frá bikarúrslitum karla, 11. febrúar 2017 þegar KR og Þór Þorlákshöfn mættust í Laugardalshöllinni. Leiknum lauk með sigri KR 78-71 eftir stórskemmtilegan leik. Jón Arnór Stefánsson, KR var valinn Lykilmaður leiksins. Skotið á RED One. Tónlist: "Smoke Screen" - Audiomachine
Myndband frá bikarúrslitum kvenna, 11. febrúar 2017 þegar Keflavík og Skallagrímur mættust í Laugardalshöllinni. Leiknum lauk með sigri Keflavíkur 65-62 eftir æsispennandi leik. Ariana Moore, Keflavík var valin Lykilmaður leiksins. Skotið á RED One. Tónlist: "Smoke Screen" - Audiomachine
Akureyri tók á móti FH í KA-Heimilinu í 14. umferð Olís deildar karla þann 19. nóvember 2015. Strax á upphafsmínútu leiksins dró til tíðinda þegar Halldór Logi Árnason fékk beint rautt spjald fyrir litlar sakir en heimamenn létu það ekki á sig fá og yfirspiluðu gestina. Ingimundur Ingimundarson skoraði með neglu rétt áður en fyrri hálfleik lauk og Akureyri leiddi 14-7 þegar flautað var til hlés. Síðari hálfleikur byrjaði vel fyrir heimamenn og fyrr en varir var staðan orðin 19-10 og spurningin í raun aðeins hve stór sigurinn yrði. En þá fór vélin að hiksta og gestirnir gengu á lagið, munurinn minnkaði og fengu FH-ingar tækifæri á að minnka forskotið niður í tvö mörk en tókst ekki. Akureyri endaði leikinn svo betur og landaði góðum 25-20 sigri. Fyrir leikinn var Akureyri í 9. sæti deildarinnar en FH í því 7. en með sigrinum skaust Akureyri upp fyrir FH. Eftir leik voru þjálfarar liðanna þeir Sverre Andreas Jakobsson og Halldór Jóhann Sigfússon teknir tali.
Myndband frá bikarúrslitum karla, 21. febrúar 2015 þegar Stjarnan og KR mættust í Laugardalshöllinni. Leiknum lauk með sigri Stjörnunnar 85-83 eftir æsispennandi lokamínútur. Justin Shouse, Stjörnunni var valinn Lykilmaður leiksins. Skotið á RED One með 10mm, 35mm og 105mm linsum. Tónlist: "Battle Anthem" - Anno Domini Beats Ljósmynd: Snorri Örn Arnaldsson
Highlights úr leik Þórs og Víkings sem fram fór á Þórsvelli þann 29 júní 2012. Leiknum lauk með sigri Víkinga.
Frábær sigur gegn Fjölni í Lengubikarnum Í kvöld tókum við á móti liði Fjölnis í Lengjubikarnum og var leikurinn hraður og skemmtilegur og frábær tilþrif sáust hjá báðum liðum. Lokatölur 101-83. Strax í fyrsta leikhluta kom í ljós að bæði lið ætluðu sér að spila hraðan bolta og eftir að honum lauk var staðan 26-28 fyrir gestina og opið fyrir mikla skemmtun fyrir fjölmarga áhorfendum á Jakanum. Í öðrum leikhluta kom góður kafli hjá KFÍ og fórum við til tedrykkju í hálfleik með 6 stiga forustu, staðan 50-44.