Content removal request!


KA - Selfoss 4-1 (8-liða úrslit Lengjubikarsins), mörkin

KA vann góðan 4-1 sigur á Selfyssingum í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins í Boganum þann 10. apríl 2017. KA var sterkari aðilinn en gestirnir náðu forystunni á 41. mínútu þegar Alfi Conteh Lacelle skoraði úr vítaspyrnu og staðan í hálfleik var 0-1. En KA kom af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og Almarr Ormarsson jafnaði metin á 47. mínútu. Stuttu síðar var staðan orðin 3-1 eftir mörk frá Elfari Árna Aðalsteinssyni og Hallgrími Mar Steingrímssyni. Daníel Hafsteinsson kláraði svo leikinn endanlega með laglegu marki á 89. mínútu og lokatölur 4-1